FORSALA – ÁÆTLUÐ ÚTGÁFA OG AFHENDING: 17. júlí 2026
Bogomil Font og Greiningardeildin hefur undanfarna mánuði verið að senda frá sér lög. Má þar nefna "Sjóddu frekar egg", "Þú stendur alltaf með mér (ásamt Emiliönu Torrini)", "Skítaveður", "Þú trumpar ekki ástina" og núna síðast "Gellur eru bestar". Þessi lög ásamt fleiri nýjum hefur verið komið fyrir á breiðskífunni "Haf þú ekki áhyggjur af því", sem kemur út þann 17. júlí á vínyl og á streymisveitum.
ATH. Ef fleiri vörur eru í pöntuninni eru allar vörur sendar þegar forsöluvaran er tilbúin til afhendingar. Ef valið er að sækja í verslun er hægt að sækja þær vörur um leið og þær eru tilbúnar til afhendingar.
- Sjóddu frekar egg
- Haf þú ekki áhyggjur af því
- Þú trumpar ekki ástina
- Skítaveður
- Bíttu í það súra
- Þú stendur alltaf með mér
- Gellur eru bestar
- Af hverju geta þessi andskotans karlar aldrei verið til friðs?
- Bosslady
- Gardínur og nagladekk