
Kardemommubærinn (2020) - Tónlistin úr sýningunni
Verð
4.090 kr
á tilboði
✔ Free cancelation
✔ No credit card fees
Tónlistin úr sýningunni er komin út á geisladisk og vínylplötu
Á 70 ára afmæli Þjóðleikhússins var ákveðið að setja upp Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner í sjötta sinn og hér er tónlistin komin í flutningi margs okkar besta tónlistarfólks og ástsælustu leikara. Karl Olgeirsson tónlistarstjóri setur tónlistina í sjóðandi brassbandsgrúv ásamt sjö manna hljómsveit og Bastían bæjarfógeti (Örn Árnason) segir söguna á milli laga. Virkilega skemmtileg útgáfa af þessu klassíska leikverki sem þjóðin hefur elskað síðan það var fyrst sett á fjalirnar 1960.
Hljómsveitina skipa auk Karls sem spilar á píanó og harmonikku: Samúel J. Samúelsson, Snorri Sigurðar og Haukur Gröndal á lúðra, Stebbi Magg á banjó, Birgir Bragason á kontrabassa og nýstirnið Lóa Bergsveins á trommur og slagverk.