Í þessari bók segir Labbi frá stórbrotinni sögu Mána. Auk þess varpar hann ljósi á hin sögulegu áhrif sunnlenskra sveitaballa á menningu og líf fólks allt frá miðri síðustu öld og fram á þá 21.
Í grófum dráttum, máli og myndum, rekur hann líka sögu þeirra hljómsveita sem hann hefur komið að auk Mána á næstum 60 ára ferli. Einnig skyggnist hann lítillega í þau verk sem hann hefur starfað við samhliða tónlistinni.